<$BlogRSDUrl$>

07 febrúar 2004

Ein uppskrift og ósk um aðra

Ég gerði steiktan fisk í gær í annað skipti ca á ævinni. Skrítið hvað þetta virðist einfalt þegar mamma gerir þetta og svo er þetta ekkert einfalt þegar ég geri þetta sjálf. Það er mikilvægt að byrja á að sjóða kartöflurnar því fiskurinn sem slíkur tekur stuttan tíma. En problemið er að jafnvel þó ég salti og pipri þá er fiskurinn bragðlaus! Hvað gerir maður til að gera fiskinn almennilega góðan?? Og jú, ég er að tala um steiktan fisk í raspi með lauk og alles. S.s. velt upp úr eggjum og raspi, steiktur á pönnu og saltaður og pipraður... Verður ekki eins góður og hjá mömmu þó ég geri þetta eins. Þvílíkur bömmer.

Djúpsteiktir kjúklingavængir á spænska vegu eru algjör snilld. Kjúklingavængir eru ódýr matur og geggjað góðir ef maður á djúpsteikingapott...
s.s. kjúklingavængir
salt

Kjúklingavængirnir skolaðir og þurrkaðir. Settir á disk. Saltaðir gaumgæfilega báðum megin og settir svo í djúpsteikingapottinn þangað til þeir eru orðnir dökk-gylltir og glæsilegir.

Þetta er svo borið fram með hrísgrjónum og salati t.d....

30 desember 2003

Ég er greinilega ekki jafn mikill nautnaseggur og ég hélt... þetta nautnablogg er ekkert sérlega aktívt ;) en jæja, sumir bloggarar eru nú mun verri ;)

Ég fékk Nigellu í jólagjöf ;) svo það bættist við matreiðslubók á mitt litla heimili. Matreiðslubækur eru mjög góður hlutur. Ef maður lítur á uppskriftir eins og á að líta á þær: sem hugmyndir! Það er nefnilega enginn til þess að segja þér að þó að höfundur hafi ákveðið að setja þetta í svona hlutfölllum þá sé það endilega best. Maður á alltaf að vera krítískur á hugmyndir annarra nefnilega og ég er ekkert hlynnt því almennt að láta aðra stjórna mér, hvað þá í eldhúsinu sem er jú heilagur staður... þegar maður er í aksjón sko ;) Að vísu eru hér undantekningar. Þegar t.d. ég baka (sem gerist í hæsta lagi einu sinni á ári) þá fer ég eftir uppskrift. Hef ekkert sjálfstraust í að fikta með magnið af lyftiduftinu osfrv... :) Svo þegar búið er að baka þá má betrumbæta. Setja komment inn í uppskriftina um að næst megi nota meira af einhverju ákveðnu osfrv... Kryddkökurnar sem ég t.d. gerði fyrir jólin voru ekki nógu góðar sem kryddkökur, mætti sko alveg spæsa þetta upp.

Annað mikilvægt atriði varðandi uppskriftir: yfirleitt eru þær gerðar með það í huga að sem flestum líki þær. Þar með er sjaldan sem eitthvað "sterkt" er í alvöru sterkt osfrv. Neutralísering í gangi sko.

Ég smakkaði perusósu um daginn sem er eitthvað thing í Hafnó. Með reyktum laxi á brauð. Gott jú... Sko perur, hunang, sítrónusafi í einhverjum hlutföllum sem þér líkar best :) Ef ég geri þessa sósu mun ég hafa hana eftirfarandi:
epli og perur maukað saman í mixer
sítrónusafi (svo þetta haldi lit)
hunang
og kannski eitthvað áfengiskennt... fer eftir hvort þetta er of sætt eða ekki nógu sætt... gin t.d. og púrtvín koma til greina.

Af hverju ég ætla að bæta við eplum? Jú sko, að vísu þarf eplið að vera soldið safaríkt... en það sem mér fannst klikka í þessari sósu var að perur eru jú ofsalega safamiklar. Epli eru mjölmeiri. Þannig held ég að peran og eplið munu vega hvort annað upp svo úr verði gott mauk á brauðið. Annars hef ég ekki prófað þetta.

Ég er smá hugmyndasnauð hvað varðar fylltar paprikur...einhverjar hugmyndir? (matur á morgun)

22 desember 2003

Þetta var nú skondið!

Það var Marilyn sem kynnti mig fyrir fylltu sveppunum... og misminnti greinilega svona svakalega að uppskriftin var í raun allt önnur.

breytingar ss:
henda stafnum af sveppnum
sjóða sveppi í sítrónusafa
setja camembert í staðinn f hvítlaukssmjör

eða
setja snigla í stað humars
og hvítlaukssmjör

þetta verður kostulegra og kostulegra... ;) en þá er ss kominn nýr réttur og hann alla vega hljómar ótrúlega vel ;) svona verður þróun krakkar mínir!

17 desember 2003

Það besta sem ég get ímyndað mér núna er rúm, jólaöl, smákökur og friends. Þvílík nautn sem það mun vera að liggja bara eins og skata eftir þessa prófatörn og maula í rúminu...

09 desember 2003

Forréttir

Heyrði alveg svakalega lýsingu á forrétti um daginn. Hef ekki orðið svo fræg að prófa en með góðu víni... t.d. Rioja hvítvíni... mmm...

Sveppir
humar
hvítlaukssmjör heimagert: ekta smjör, fersk basilika, og auðvitað ferskur hvítlaukur hrært saman vel og vandlega.

Sveppirnir: stafirnir skornir af. Fyllt með hvítlaukssmjöri. Humar settur oní (bara smá... æ Marilyn hvað heitir þetta... svona afgangshumar í poka úr t.d. Nóatúni). Stafurinn oná.

Sett inn í ofn á temmilegan hita þannig að hvítlaukssmjörið bráðnar.

Algjörlega tilvalið sem snakk fyrir mat, eða nettur forréttur :)

04 desember 2003

Endurfæðing konunnar

Lenti í kröftugum umræðum um blæðingar. Samkvæmt viðmælanda er búið að bæla niður þetta heilaga tímabil sem heita blæðingar og gera úr því eitthvað ógeðslegt, sem þarf að fela. Einnig ber konunni að fela öll ummerki um blæðingar sem og þau andlegu áhrif sem þær valda.

Þetta var leitt út í hið ósannaða en hugsanlega mæðraveldi til forna; blæðingar urðu þess valdandi að maðurinn mennskaðist. Fór úr dýri í mann út af þessum rhytma sem tengdur var við tunglið. Konan er náttúrlega ein af fáum dýrategundum sem er frjó allt árið um kring, þó á stuttum tímabilum sé, og hefur reglulegar blæðingar.

Seinna voru blæðingar tengdar áhreinleika og ógeði en um leið mystík. Þá fóru konur inn í sjálfar sig og komu upp úr djúpinu með nýja sýn.

Þetta tímabil einkennist af því að konan fer inn í sjálfa sig, deyr og endurfæðist, og eftir þá reynslu hlýtur eitthvað nýtt að sitja eftir.

Ég hafði aldrei litið á það svona. Blæðingar voru fyrir mér bara vondur tími, sérstaklega fyrsti dagurinn, tími mikillar og ófullnægðar kynhvatar, verkja og dýrra dömubinda.

En það er einmitt þessi kynhvöt sem er svo merkilegt. Af hverju eykst hún á þessum tíma? Að sjálfsögðu má nýta hana í margt annað en kynlíf, kynhvöt er bara dræf...

Held maður ætti að fara að lesa sér meira til um líkamann og trúarbrögð til forna. Af hverju ekki að reyna að njóta þessa tímabils eins og annarra í lífinu?

03 desember 2003

Hér með opna ég nýja bloggið mitt sem er með áherslu á nautnir ( en hitt er jú fyrir allt annað sem mér dettur í hug).

Í tilefni opnunar vil ég benda á viskubrunninn fyrir allt er varðar kynlíf... og bendi þá sérstaklega á spjallþræðina.

Njótið vel :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?